Þeir sem þekkja mig hafa kannski orðið varir við að ég er frekar fyrir að prófa og framkvæma en að grafa djúpt í kenningar. Ég hef lengi vitað af Etwinning verkefninu en aldrei látið veraða af því að taka þátt, en ákvað núna um daginn að prófa. Tveim tímum eftir að ég skráði mig inná vefinn var ég tvinnuð við verkefni sem Ítalskur skóli stofnaði og fjallar um hefðir í hverju landi. Ég ætla að vinna verkefni með 6. og 7. bekk um hefðir og venjur á Íslandi t.d. þorrann og sumardaginn fyrsta. Þetta er skemmtilega auðvelt og ég hvet kennara að taka þátt því verkefnin eru fjölbreytt og þurfa ekki að vera löng.
Mar 05
Mar 03
Ég er búin að gera tilraun með forritið Scratch í vali hjá mér með nemendum í 8. til 10. bekk. Þau voru mjög fljót að tileinka sér hugsunina í sambandi við forritun enda er forritið einfalt í notkun og myndrænt. Það leið ekki langur tími þar til persónur tölvuleikjanna voru farnar að hreyfast og skorið að telja. Útkoman var misjöfn eins og nemendurnir voru margir en í öllum tilfellum mun betri en ég þorði að vona í upphafi valsins. Forritið Scratch hefur sem sagt staðist prófið og er núna komið í hóp þeirra forrita og lausna sem boðið verður uppá í vali í Flúðaskóla hér eftir.

