Það er búið að standa lengi í Aðalnámsskrá grunnskóla að upplýsingatækni eigi að kenna í gegnum aðrar námsgreinar. Þegar maður hugsar um það og fer að reyna það á eigin skinni þá er þetta náttúrulega alveg augljóst. Við hér í Flúðaskóla erum búin að þróa með okkur nokkra samvinnu á sviði upplýsingatækni, raungreina og íslensku þar sem þessar þrjár greinar fléttast saman í eitt stórt verkefni. Núna um þessar mundir eru nemendur í 9. bekk að vinna stóra ritgerð í raungreinum sem einnig gildir sem einkun í íslensku og upplýsingatækni. Nemendurnir fá tímana í upplýsingatækni til að vinna ritgerðina og þar með hjálp við uppsetningu hennar og vinnslu. Einnig er tekið fyrir í íslensku heimildaskráning og annað því tengt. Þessi samfinna fer svo öll fram í Moodle þar sem nemendur hafa aðgang að gögnum og geta unnið í ritgerðinni heima og í skóla. Þessi samvinna er mjög góð fyrir okkur öll og nemendurnir eru ánægðir með að geta notað Moodle vefinn til að hafa öll aðföng á.
Apr 18
Myndir
-
Athugasemdir
SFjalar- Taktu þátt í að þýða Moodle 5. September, 2010
- Sýndarpíanó á vefnum 15. August, 2010
- Verkefnalausnir frumsýna MindManager 9 10. August, 2010
Síður
-
Spam
Tög
Bloggarar
Frítt og frjálst
Krækjur
Ýmsir vefir
Fyrri skrif
Meta

