Um mig

Ég heiti fullu nafni Elín Jóna Traustadóttir og er fædd árið 1971og uppalin í Unnarholti í Hrunamannahreppi. Núna bý ég í Tungufelli í Hrunamannahreppi sem er efsti bærinn í sveitinni. Ég á tvö börn Maríönnu fædda 1995 og Einar Trausta fæddan 1998. Maðurinn minn heitir Svanur Einarsson og er hann frá Tungufelli og erum við ógift. Við stundum búskap með kýr, kindur og hesta.
Árið 1989-90 fór ég sem skiptinemi til Bandaríkjanna.
Árið 1992 útskrifaðist ég sem stúdent frá Menntaskólanum að Laugarvatni.
Árið 1994 útskrifaðist ég sem íþróttakennari frá ÍKÍ. Ég hef verið íþróttakennari og nú síðustu ár Upplýsingamenntar kennari síðan árið 1997.
Haustið 2004 byrjaði ég í Framhaldsdeild KHÍ í Upplýsinga- og tæknimennt og á von á að klára það haustið 2006.

