Mér tókst það!! Hér á blogginu mínu hef ég verið að velta vöngum yfir starfi ráðunautar í Upplýsingatækni á Suðurlandi. Nú er svo komið að ég er búin að skipta um vinnu og er á leið í starf þar sem ég get breitt út fagnaðarerindið til fleiri skóla. Veit ég vel að nú þarf ég að passa mig á að fylgjast með innan skólageirans og sofna ekki á verðinum. Þróun í upplýsingatækni er rosalega ör og maður þarf að hafa sig allan við að fylgjast með. Ég vona að ég eigi eftir að eflast í starfi og miðla af reynslu og þeirri þekkingu sem ég hef náð mér í. Í ágúst hef ég störf hjá TRS eða Tölvu og rafeindaþjónustu Suðurlands á Selfossi og mun aðallega vera tengiliður fyrirtækisins inní skólana á Suðurlandi í sambandi við tæknimál.
Með nýju ári hefst alltaf eitthvað nýtt. Við förum í megrun eftir jólin, og fyrirheitin er fögur. Í skólanum er þó samstillt átak í að byrja strax á fullu til að nýta kraftana sem söfnuðust í jólafríinu.
Ég ákvað eftir að hafa fundið pistil um stórgott myndvinnsluforrit Paint.net, á blogginu hjá Fjalari, að taka það með trompi á nýju ári og hella krökkunum í Flúðaskóla út í að læra á forritið. Það var einfalt að setja það upp í allt tölvukerfið með aðstoð Softgrid og svo hófst bara kennslan. Ja eins og ég er reyndar vön að gera þá bara útskýrði ég nokkra þætti í sambandi við myndatöku og myndvinnslu og síðan fengu nemendurnir lausan tauminn til að prófa og uppgötva. Mér hefur reynst þessi kennsluaðferð vel þar sem nemendur spyrja hvort annað hvernig viðkomandi hefur gert einhverja aðgerð o.s.frv.
Nemendur eru ótrúlega fljót að ná tökum á hinum ýmsu forritum og einu takmörk okkar kennaranna eru að finna nógu krefjandi verkefni fyrir þá að leysa af hendi.
Ég mæli tvímælalaust með forritinu Paint.net sem er Open source forrit, nægilega einfalt fyrir almennan notanda og nægilega vel búið tækjum og tólum fyrir alla myndvinnslu.
Jæja nú ætla ég að einsetja mér að skrifa meira á bloggið mitt. Ég er loksins búin að koma þessu þannig fyrir að ég er ánægð með þetta og nú er www.ellajona.net virkt.
Maður þreytist aldrei á því þessa dagana að tala um veðrið en það hefur verið frekar þurrt upp á síðkastið og það virðist sem regndansar og önnur ráð bregðist. En sennilegt er að þegar maður ætlar að fara að heyja þá byrjar að rigna. Við erum nú samt nánst hálfnuð að heyja en erum nú í pásu.
Eins og þið kannski sjáið á blogginu þá er ég búin að tvískipta því þannig að enskan er annarsstaðar og það gerir mér kleift að skrifa á sitthvort bloggið á íslensku og ensku. Gaman!!!
Nú er ég líka búin að búa til vefsíðugerðar þjónustu á www.blafell.net. Það er mikil þörf fyrir það og ég held að fólk hérna í sveitinni eigi eftir að nýta sér þetta. Ég býð uppá að búa til vefi í Joomla og Wordpress sem er alger snilld.
Mikið flóð er í Hvítá og flæðir nú vatn yfir brúna við Brúarhlöð og hefur veginum verið lokað þar. Einnig er búið að loka veginum að Auðsholti og er búist við flóði við Selfoss um kl. 17 í dag. Ég fór í kringum hádegi að taka myndir og má nálgast þær á myndavefnum mínum http://picasaweb.google.com/elitraus
Varla er munað eftir svo miklu vatnsrennsli við Brúarhlöð þar sem stöðugt rennsli er, en ekki hefur myndast klakastífla.
Unnið var að björgun hrossa í kringum Auðsholt og voru þar nokkur stóð í hættu. Í það minnsta 26 hross voru í mikilli hættu frá Unnarholtskoti og freistuðu menn þess að láta þau synda í land. Eins og myndir hér að neðan gefa til kynna tókst stórum hluta þeirra að synda í land en ekki er vitað á þessari stundu hvort tókst að koma þeim öllum að landi.

Tók bara fréttapistilinn minn frá Flúðir.is til að spara skrifin.
Ja það er ekki hægt að segja annað en að náttúruöflin séu búin að vera okkur óhliðholl núna undanfarna daga. Það er búið að vera snarvitlaust veður og núna bíðum við bara eftir snjónum og brjálaða bylnum sem á að koma á morgun.
Það er búið að vera margt að snúast núna undanfarna daga og má þar helst nefna að ég var með námskeið í meðferð ljósmynda í tölvu fyrir kvennfélagið hérna. Þegar ég var að undirbúa þetta námskeið þá rakst ég á www.picasaweb.google.com sem er alger snilld. Miklu þægilegar en www.flickr.com. Þessi vefur tengist Picasa 2 forritinu frá google sem gerir hlutina nokkuð einfalda. Ég gat meira að segja kennt Mörtu vinkonu þetta sem er ekki sú tæknivæddasta í heimi.
Nú síðan var Svanur að sjá um Karlakvöld Karlakórs Hreppamanna og hjálpaði ég honum í eldhúsinu þá um kvöldið. Og svo var söngdagur hjá Kirkjukórnum í gær og messa hjá Maríönnu í dag. Alltaf nóg að snúast.


