Næsta haust verður gerð tilraun með að nota Open Office í Flúðaskóla, verður skrifstofuvöndullinn notaður samhliða Office 2007 til að byrja með. Eftir fall krónunnar í haust og með hækkandi verði frá Microsoft hefur Microsoft samningurinn hækkað umtalsvert og eru nú skólastjórnendur í óða önn að finna leiðir til að lækka rekstrarkostnað. Það verður því gaman að geta leyft ykkur að fylgjast með þróuninni í Flúðaskóla.
Það er búið að standa lengi í Aðalnámsskrá grunnskóla að upplýsingatækni eigi að kenna í gegnum aðrar námsgreinar. Þegar maður hugsar um það og fer að reyna það á eigin skinni þá er þetta náttúrulega alveg augljóst. Við hér í Flúðaskóla erum búin að þróa með okkur nokkra samvinnu á sviði upplýsingatækni, raungreina og íslensku þar sem þessar þrjár greinar fléttast saman í eitt stórt verkefni. Núna um þessar mundir eru nemendur í 9. bekk að vinna stóra ritgerð í raungreinum sem einnig gildir sem einkun í íslensku og upplýsingatækni. Nemendurnir fá tímana í upplýsingatækni til að vinna ritgerðina og þar með hjálp við uppsetningu hennar og vinnslu. Einnig er tekið fyrir í íslensku heimildaskráning og annað því tengt. Þessi samfinna fer svo öll fram í Moodle þar sem nemendur hafa aðgang að gögnum og geta unnið í ritgerðinni heima og í skóla. Þessi samvinna er mjög góð fyrir okkur öll og nemendurnir eru ánægðir með að geta notað Moodle vefinn til að hafa öll aðföng á.
Þeir sem þekkja mig hafa kannski orðið varir við að ég er frekar fyrir að prófa og framkvæma en að grafa djúpt í kenningar. Ég hef lengi vitað af Etwinning verkefninu en aldrei látið veraða af því að taka þátt, en ákvað núna um daginn að prófa. Tveim tímum eftir að ég skráði mig inná vefinn var ég tvinnuð við verkefni sem Ítalskur skóli stofnaði og fjallar um hefðir í hverju landi. Ég ætla að vinna verkefni með 6. og 7. bekk um hefðir og venjur á Íslandi t.d. þorrann og sumardaginn fyrsta. Þetta er skemmtilega auðvelt og ég hvet kennara að taka þátt því verkefnin eru fjölbreytt og þurfa ekki að vera löng.
Ég er búin að gera tilraun með forritið Scratch í vali hjá mér með nemendum í 8. til 10. bekk. Þau voru mjög fljót að tileinka sér hugsunina í sambandi við forritun enda er forritið einfalt í notkun og myndrænt. Það leið ekki langur tími þar til persónur tölvuleikjanna voru farnar að hreyfast og skorið að telja. Útkoman var misjöfn eins og nemendurnir voru margir en í öllum tilfellum mun betri en ég þorði að vona í upphafi valsins. Forritið Scratch hefur sem sagt staðist prófið og er núna komið í hóp þeirra forrita og lausna sem boðið verður uppá í vali í Flúðaskóla hér eftir.
Ein af snilldar lausnum sem ég hef rekist á í gegnum tíðina er www.spurl.net Þar er hægt að stofna krækjubanka á netinu þar sem maður safnar saman þeim síðum sem maður dettur niður á í grúski sínu á netinu.
Í Flúðaskóla höfum við þann háttinn á að ég stofnaði Spurl fyrir skólann og bjó til flokka fyrir hverja námsgrein fyrir sig. Síðan kom ég kennurum uppá að bæta sjálfum inní Spurlið og smá saman hefur safnast heilmikill krækjubanki sem nemendur og kennarar nýta sér. Ef kennara treysta sér ekki til að setja inn í Spurlið þá senda þeir mér einfaldlega slóðina og ég set hana inn.
Krækjusafnið er síðan aðgengilegt á netinu fyrir kennara og nemendur að nýta sér hvenær sem er og hvar sem er.

