Tilraun með Open Office í grunnskóla

Engin athugasemd »

Næsta haust verður gerð tilraun með að nota Open Office í Flúðaskóla, verður skrifstofuvöndullinn notaður samhliða Office 2007 til að byrja með.  Eftir fall krónunnar í haust og með hækkandi verði frá Microsoft hefur Microsoft samningurinn hækkað umtalsvert og eru nú skólastjórnendur í óða önn að finna leiðir til að lækka rekstrarkostnað.  Það verður því gaman að geta leyft ykkur að fylgjast með þróuninni í Flúðaskóla.

Scratch

Engin athugasemd »

Ég er búin að gera tilraun með forritið Scratch í vali hjá mér með nemendum í 8. til 10. bekk.  Þau voru mjög fljót að tileinka sér hugsunina í sambandi við forritun enda er forritið einfalt í notkun og myndrænt.  Það leið ekki langur tími þar til persónur tölvuleikjanna voru farnar að hreyfast og skorið að telja.  Útkoman var misjöfn eins og nemendurnir voru margir en í öllum tilfellum mun betri en ég þorði að vona í upphafi valsins.  Forritið Scratch hefur sem sagt staðist prófið og er núna komið í hóp þeirra forrita og lausna sem boðið verður uppá í vali í Flúðaskóla hér eftir.

Góð flækja

Engin athugasemd »

Ég er núna búin að skrifa nokkrar greinar um opinn hugbúnað í skólastarfi.  Þar er ég þó helst búin að skrifa um Joomla vefumsjónarkerfið og bloggkerfið Wordpress.

Eitt opið kerfi hef ég þó ekki skrifað um sérstaklega en er þó afar skemmtilegt og flækist inn í öll hin kerfin, en það er Gallery2 myndakerfið.

Í skólanum eru teknar margar myndir og eftir að digital tæknin kom til sögunnar þá hafa þessar myndir legið í ósýnilegri möppu á netþjóni skólans og engum til gagns né prýði.  Ég var búin að hugsa það í nokkur ár hvernig hægt væri að birta þessar myndir foreldrum og prófa nokkrar aðferðir.  Ég fann lausnina í Gallery2, það fléttast auðveldlega inní Joomla og Wordpress sem gerir það að verkum að kennarar nota myndir í bloggfærslur sínar í auknu mæli.

Fyrst stóð ég í því að setja myndirnar sjálf á netið að beiðni kennara, en núna í haust skrifaði ég leiðbeiningar um hvernig á að birta myndirnar á vefinn og ætlast nú til að kennarar geri það sjálfir. 

Mikil ánægja var meðal foreldra að fá loks að sjá myndirnar sem teknar eru af börnum þeirra í skólanum.  Við upphaf þessara myndbirtinga var leitað leyfis foreldra þar sem þeir þurftu að skrifa undir plagg þess efnis.

Myndbirtingar af þessu tægi auka enn á samskipti heimila og skóla og skapar jákvæða ímynd af skólastarfinu.  Börnin hafa líka mjög gaman af því að geta sýnt foreldrum sínum afrakstur dagsins og eru mikill þrýstihópur fyrir kennarana að standa sig í að setja myndirnar út á netið.

Þvílík guðsnáð að eiga Joomla

2 athugasemdir »

Ég veit það ekki, en ég held að skólasamfélagið sé aðeins að vakna til lífsins með að það er til opinn hugbúnaður.  Ég er búin að sökkva mér á kaf í Joomla núna undanfarið ásamt fjölda annarra opinna hugbúnaðar og hef fengið fyrirspurnir og viðbrögð víðs vegar af landinu um vefumsjónarkerfið Joomla. 

Við í Flúðaskóla notum þetta frábæra kerfi til að birta heimasíðu okkar og eftir að ég setti það upp og skrifaði nokkuð nákvæmar leiðbeiningar um hvernig á að birta fréttir og annað inná síðunni þá hef ég losnað við þann part vinnunnar.  Skólastjórnendur eru ánægðir með að geta sett inn fréttir sjálfir og hvað þá ég að vera laus við það. 

Ég þjónusta líka Leikskólann Undraland og spurði mig strax að því af hverju þarf leikskólinn ekki líka svona síðu.  Nú ég komst að því að auðvitað þarf leikskólinn líka svona síðu, og við bættum um betur og settum upp bloggsíður fyrir allar deildir líka í Wordpress kerfinu.  Upplýsingastreymi frá skólunum þarf að vera gott og það er ekkert betra en opinn frjáls hugbúnaður sem er uppfærður reglulega til að vinna vinnuna.

Ég hef kynnst öðrum vefsíðuhugbúnaði t.d. frá Outcome þar sem heimasíða Hrunamannahrepps var hýst og einnig Lísu sem Búnaðarbankinn var með hér í gamla daga :-) , en eftir að ég fattaði hugsunina á bak við Joomla þá finnst mér ekkert betra.  Ég var reyndar smá tíma að komast á bragðið en eftir smá leiðsögn frá góðum félaga Sigurði Fjalari þá small þetta.  Ég brá á það ráð mjög fljótlega að telja Hrunamannahrepp á að hætta að eyða peningum í að kaupa hugbúnaðaráskrift mánaðarlega og setti vef hreppsins upp í Joomla.  Vissulega er það mikil vinna að flytja vef svona á milli kerfa en mér óaði þó ekki vinnan.  Nú sparast um 35.000 kr. á mánuði í hugbúnaðaráskrift og í staðinn getum við notað peningana í að bæta tölvukerfið hjá okkur.  Hvað er betra??

Ég ætla að halda áfram að skrifa pistla um opinn hugbúnað hér á síðu minni og ég vona að einhverjir rati hingað inn og lesi þá.  Ég er ekki nema bara rétt að byrja á þeim forritum sem ég nota annaðhvort í kennslu eða sem vinnutæki fyrir kennara.
En endilega kvittið fyrir innlitið með smá innleggi

Comic life í grunnskóla

Engin athugasemd »

Ég komst á snoðir um frábært forrit á bloggsíðunni hjá S. Fjalari www.sfjalar.net. Ég ákvað að gera nemendur mína strax að tilraunadýrum eins og ég er vön og nota forritið Comic life í vali hjá 8.-10. bekk.  Af eru 2 tímar og allt lofar þetta góðu. Þetta er forrit sem gerir manni auðvelt að búa til teiknimyndablað.  Ég byrja á að láta krakkana skrifa handrit, teikna storyboard og síðan ætlum við að taka venjulegar ljósmyndir sem eru uppstilltar í samræmi við storyboardið.  Jafnvel fá krakkarnir að selja blaðið í lok valtímabilsins í bekkjasjóð sinn. 

Ég gerði fyrir nokkrum árum námskeið í Moodle í stuttmyndagerð og má segja að vinnuferlið sé mjög svipað í Comic life eins og í stuttmyndagerð þar sem vinna þarf sömu þættina.  Ég nota það námsskeið sem grunn og einfaldar það hlutina mjög að hafa allt efni á einum stað þar sem hægt er að endurnýta það aftur og aftur.

 

Entradas anteriores »