Mar 03
Ég er búin að gera tilraun með forritið Scratch í vali hjá mér með nemendum í 8. til 10. bekk. Þau voru mjög fljót að tileinka sér hugsunina í sambandi við forritun enda er forritið einfalt í notkun og myndrænt. Það leið ekki langur tími þar til persónur tölvuleikjanna voru farnar að hreyfast og skorið að telja. Útkoman var misjöfn eins og nemendurnir voru margir en í öllum tilfellum mun betri en ég þorði að vona í upphafi valsins. Forritið Scratch hefur sem sagt staðist prófið og er núna komið í hóp þeirra forrita og lausna sem boðið verður uppá í vali í Flúðaskóla hér eftir.

