Hugbnauranna_img1.gif 2. Hugbúnaður annað
Annar hugbúnaður en til beinnar kennslu var einnig að finna, þar skoðaði ég t.d. LanSchool og  einnig Smootwall.  Einnig var Microsoft með stóran bás á sýningunni og þar voru stöðugir fyrirlestrar  um eitt og annað.  Margir þeirra voru mjög áhugaverðir.
UT umsjón - LanSchool
LanSchool er bekkjaumsjónarkerfi sem notað er til þess að hafa stjórn á tölvum nemenda í  tölvuverum.  Seld eru bekkjarleyfi.
UT umsjón - Smoothwall
Smootwall er með mjög öflugan eldvegg sem er  sérhannaður að skólum svokallaðan School  Guardian.  Einnig kynntu þeir til sögunnar  vélbúnað sem er  sérhannaður með Smoothwall og  passar í tækjaskápa  1U.
Microsoft - Windows 7
Windows 7 stýrikerfið er verulega að ryðja sér til rúms um þessar mundir.  Þetta stýrikerfi er mjög  skemmtilegt og létt til notkunar, nokkuð vel heppnað.
Microsoft - LiveEdu
Microsoft er að bjóða skólum og þá sérstaklega framhalsdsskólum fría hýsingu á netföngum og  gögnum.  Hægt er að nota eigið lén og er hýsing tölvupósts með 10 gb svæði.  Einnig er boðið  uppá gagnahýsingu einskonar heimasvæði uppá 25 gb. Þetta er mjög vænlegur kostur fyrir skóla  að bjóða uppá þetta fyrir nemendur sína, þetta lækkar kostnað vegna utanumhalds á gögnum og  tölvupósti.