Hugbnaurkennsla_img1.gif 1. Hugbúnaður kennsla
Hugbúnaður til kennslu var vissulega meginþáttur  Bett sýningarinnar í ár eins og undanfarin ár.  Sérstakt þema um "Playful learning" var í miðju sýningarsvæðisins og var þar mikið um hugbúnað  sem stuðlar að leikgleði og sköpunargáfu nemendanna.
Enska - Manic monkey
Little Bridge
Hugbúnaður sem notaður er í enskukennslu yngri  bekkja.  Sjónrænn og skemmtilega settur fram
Áhugaverður og hefur verið notaður víða um heim í  löndum þar sem enska er annað eða þriðja  tungumál.
Kemur með bekkjarleyfi, 
Raungreinar - Designmate.com
Designmate.com er með mikið úrval af 3D  videomyndum fyrir raungreinar og stærðfræði.  Þetta  eru myndir sem sýna á mjög lifandi hátt ýmsa þætti í  raungreinum sem erfitt getur verið að útskýra.
Ut-Sérkennsla - Crick Software
Crick hugbúnaðurinn hefur verið mikið notaður í  sérkennslu og hentar vel í það.  Margir kannast  kannski  við Clicker og Jigworks.  Crick hugbúnaðurinn hentar  einnig til kennslu yngri barna.
UT Forritun - Games Factory 2
Áhugaverður hugbúnaður til forritunar, t.d.  tölvuleikjagerðar.  Einfalt er að búa til tölvuleiki með  þessu forriti og er hann skrifaður fyrir börn og unglinga.
Hægt er að fá skólaleyfi.
UT Margmiðlun - Stop motion
Stop motion er skemmtileg leið til að fá nemendur til að  vinna við ýmis verkefni og leika sér um  leið.  T.d. er  hægt að nota þessa tegund margmiðlunar í  samfélagsfræði, ensku og margt fleira.  Með Stop  motion er átt við kvikmyndagerð, með tilbúinni leikmynd  þar sem hver rammi er tekinn  fyrir sig.
Zu3D
Frábært og einfalt forrit til að búa til Stop Motion  myndir. Mjög notendavænt og gefur mikla  möguleika á  að vinna myndir með yngri börnum jafnt og eldri.
Hægt að kaupa eitt leyfi eða notendaleyfi fyrir skóla.
Vefsíður
I Can Animate
Þetta forrit er aðeins flóknara í notkun og býður uppá  meiri möguleika.  Hentar betur eldri krökkum.
UT Samþætting - 2Simple
2Simple er sería af forritum sem hægt er að nota í  upplýsingatækni kennslu.  Forritin miða mest  að  kennslu yngri barna og upp í miðstig.  Þetta eru einföld  og sjónræn forrit og er listi yfir þau að  finna hér .
UT Samþætting - Google products
Google býður uppá mikið af forritum og efni til að nota í kennslu.  Má þar nefna Google Earth sem  er  hægt að nota mikið í samþættingu UT við kennslu.  Ein hugmynd sem ég sá á sýningunni var  t.d. að  nota GPS tæki til að skrásetja atburði (Samfélagsfræði) eða búa til form (Stærðfræði) og  flytja það svo  inná Google Earth 
Google er ókeypis en sum hjálparforrit þarf að kaupa t.d. í sambandi við GPS
UT Samþætting - Britannica
Britannica býður uppá ýmislegt námsefni sem hægt er  að nota í kennslu
UT Samþætting - BrainPop
Samþætting námsgreina við UT. Hægt að fá  prufuaðgang til að skoða efnið
UT Samþætting - Sherston
Samþætting námsgreina við UT. Hægt að fá  prufuaðgang til að skoða efnið
UT Samþætting - ComicLife
Comic Life er forrit til að búa til teiknimyndasögur. Þetta er mjög skemmtilegt forrit og einfalt í  notkun. Hægt er að nota sínar eigin ljósmyndir eða teikna myndir í teikniforriti og raða þeim svo inn  í Comic Life.