Open Source var ekki mjög stór þáttur á Bett 2010, en samt virðist sem búið sé að samþætta
opinn hugbúnað við kennslu mjög víða. Þetta er ekki ólíkt því sem við erum að gera í skólum hér
t.d. að nota þau fríforrit sem bjóðast og má segja að flest af þessu sem talið er upp hér sé
kunnuglegt og í notkun í einhverju mæli víðast hvar á Íslandi.
Tux forritin eru vönduð open source forrit fyrir yngri kynslóðina, þar á meðal má nefna TuxPaint,
TuxType og TuxMath. TuxPaint er teikniforrit og er það íslenskað. TuxType er vélritunarforrit sem
þjálfar börn í vélritun með ýmsum leikjum. TuxMath er forrit sem þjálfar börn í stærðfræði.
Vefumsjónarkerfi eru margskonar og má nefna að tvö open sourse forrit eru algeng. Joomla hefur
rutt sér til rúms hér á Íslandi og eru margir skólar að nota það vefumsjónarkerfi fyrir vefsíður sínar. Drupal er samskonar kerfi en hefur ekki verið eins mikið notað í skólum á Íslandi
Moodle
Moodle er námsumsjónarkerfi sem hefur verið þróða í nokkuð langan tíma. Þetta er open sourse
kerfi og býður uppá mjög marga möguleika fyrir kennara í framsetningu námsefnis og samskiptum
við nemendur.