Vlbnaur_img1.gif 3. Vélbúnaður
Vélbúnaður var mjög viðamikill á Bett 2010 og má þar  helst nefna Snertitöflurnar og ýmsar tölvur  með  snertiskjám, einnig er greynilegt að 3D er að ryðja sér  til rúms í kennslu.  Það mátti sjá að  ýmsir skjávarpar  sem styðja 3D voru til sýnis.
Snertitöflur
Snertitöflur er greinilega orðinn stór hluti í miðlun efnis  til  nemenda, mikið af forritum og  kennsluefni miða  sérstaklega að því að notaðar séu snertitöflur.  Ég lagði  ekki mjög mikla áherslu  á að kynna mér þetta þar sem  ég vissi að slíkur búnaður er ekki á leið í skóla á  Íslandi í  bráð.
3D skjávarpar
3D er að verða stór þáttur í kennslu og þá sérstaklega  náttúrufræði, mikið af hugbúnaði hefur verið  gerður í 3D  t.d um mannslíkamann og ýmis eðlisfræðilega hugtök